Kór National Philharmonic frá Washington DC sækir heim íslenska kórinn Vox academica. Kórarnir halda saman tónleika í Langholtskirkju laugardaginn 5.júní kl.15.00. Á efniskránni er margt af því besta sem bandarísk kórmenning hefur upp á að bjóða. Þar eru fyrirferðamest klassísk, bandarísk kórverk 20. aldar sem hafa notið mikilla vinsælda víða um heim. Stjórnendur á tónleikunum verða Prof. Stan Engebretson og Dr. Hákon Leifsson.
Á tónleikunum verða fluttir margir gullmolar svo sem hið fræga Agnus Dei eftir Samuel Barber sem ávallt er flutt þegar þjóðarsorg ríkir í Bandaríkjunum. Þá verða flutt verkin Alleluia eftir Randall Thompson, Magnificat eftir Michael Lauridsen, Ave María eftir Hjálmar H. Ragnarsson og rúsínan í pylsuendanum er svo hið fræga verk Bernstein, Chichester Psalms fyrir kór og orgel, hörpu og slagverk.Verkið samdi Bernstein uppúr skissum og hugmyndabrotum sínum af West Side story söngleiknum.
National Philharmonic kórinn heimsækir Ísland nú í fyrsta sinni. Kórinn er að jafnaði 170 manna kór sem starfar með 100 manna hljómsveit sem hefur aðsetur sitt í Music Center í Strathmore, Washington D.C og er öflugasti flytjandi klassískrar tónlistar á þeim slóðum. Aðeins 25 manns úr kórnum koma að þessu sinni og syngja nú hér með liðsmönnum Vox academica. National Philharmonic kórinn flytur reglulega helstu meistaraverk tónbókmenntanna á um 30 tónleikum á hverju ári ásamt nýrri verkum. Á verkefnaskrá kórsins eru oratórísk verk eins og Messias eftir Händel, Ein Deutsches Reqiuem eftir Brahms, Carmina Burana eftir Orrf, Chichester Psalms eftir Bernstein og þar fram eftir götum. Fyrir utan reglulegt tónleikahald er starfræktur söngskóli á vegum kórsins og mikið starf þar unnið við að kynna klassíska gæðatónlist ungu fólki.
Stjórnandi NPC er Dr.Stan Engelbretson. Hann er af íslensku bergi brotinn uppalinn á Íslendinga slóðum vestra í hinni kunnu sveitaborg Fargo í Norður Dakóta. Hann kynntist ungur Skandinavískri kóramenningu og hefur aflað sér víðtækrar menntunar og reynslu á sviði tónlistar. Hann lauk Mastersnámi í píanóleik og söng frá University of North Dakota, Doktorsgráðu í hljómsveitarstjórnun frá Stanford University. Hann hefur kennt við University of Texas og University of Minnesota. Einnig er hann listrænn stjórnandi Midland-Odessa Symphony Chorale og aðstoðarstjórnandi Minnesota Chorale. Frá 1990 hefur hann stjórnað NPC og er prófessor í kórsöng við George Mason University. Hann gegnir auk þess fjölda annarra starfa í þágu tónlistarlífsins í Bandaríkjunum og í Evrópu. Hann hefur komið oft til Íslands á vegum Fulbright-stofnunarinnar og kennt kórstjórn, m.a. við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Þannig hófst samstarf þeirra Stan og Hákonar Leifssonar, stjórnanda og stofnanda Vox academica, en Hákon kennir kórstjórn við Tónskólann. Þar er komin kveikjan að þeim góðu tengslum sem eru á milli NPC og Vox academica.
Náttsöngvarnir eru samdir við hefðbundna messugjörð rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Verkið var samið árið 1915 og náði strax gífurlegum vinsældum. Það þykir vera eitt fegursta verk Rachmaninoffs og hátindur ferils hans. Verkið byggist á náttsöng rétttrúnaðarkirkjunnar, sem var blanda af kvöld– og morgunbænum og hefur höfundur valið úr textunum og tónsett þá. Margir textanna eru hefðbundnir biblíutextar, eins og Lofsöngur Maríu (Magnificato) og Lofsöngur Símeons, aðrir eru fornir sálmatextar úr rétttrúnaðarkirkjunni. Verkið er flutt af fjórradda blönduðum kór í grunni, en víða eru raddir deildar og er stundum sungið í allt að ellefu röddum í einu. Gefur það verkinu afar sérkennilegan og fagran blæ, sem kalla má “ekta rússneskt yfirbragð”.
Nú á vordögum ræðst Vox academica í flutning eins af stórvirkjum tónbókmenntanna, h-moll messu Johanns Sebastians Bach. Kórinn er löngu orðinn þekktur af flutningi sínum á glæstustu kórverkum tónlistarsögunnar og skammt er að minnast rómaðs flutnings á Sálumessu Verdis í Hallgrímskirkju árið 2008, en h-moll messan er líklega viðamesta verkefni kórsins til þessa.
H-moll messan er krýningardjásnið á yfirgripsmiklu höfundarverki Bachs. Bach vann að messunni með hléum frá árinu 1724 til 1748 og að margra mati er verkið eins konar samantekt tónskáldsins á eigin tónmáli, stílbrigðum og tjáningu – úrval af því besta frá þessum snillingi barrokktónlistarinnar. Fá tónverk ná viðlíka hæðum í listfengi, innblæstri og margbreytileika og þessi mikilfenglega messa. Það er því ljóst að þetta er viðburður sem enginn tónlistarunnandi má láta fram hjá sér fara.
Kórnum til fulltingis á þessum tónleikum verður einvalalið einsöngvara, þau Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran, Ingunn Ósk Sturludóttir, mezzósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Jóhann Smári Sævarsson, bassi. Kammersveitin Jón Leifs Camerata leikur með kórnum nú sem svo oft áður, en stjórnandi er Hákon Leifsson.
Tónleikarnir verða í Langholtskirkju þann 16. maí n.k. klukkan 15:00 og miðaverð er kr. 4.000. Miðar í forsölu fást í 12 tónum við Skólavörðustíg, en einnig er hægt að panta miða á netfanginu voxacademica@gmail.com. Allar frekari upplýsingar um tónleikana og miðapantanir er að fá hjá Þorgerði (864 5658) eða Þórarni (897 1257), sem og á heimasíðu kórsins: http://www.voxacademica.net .
Kórinn Vox Academica er að hefja sitt 13. starfsár. Vox Academica er blandaður 60 manna kór skipaður tónlistarmenntuðu fólki og þjálfuðu fólki í kórsöng. Æfingar eru einu sinni í viku, á þriðjudagskvöldum og fyrsta mánudag hvers mánaðar. Markmið kórsins er að vinna stærri verk tónbókmenntanna með íslenskum tónlistarmönnumog reyndum kórsöngvurum, þannig að kleift sé að takast á við helstuperlur kórbókmenntanna
Kórinn hefur flutt mörg af fegurstu verkum tónlistarsögunnar á þeim 12 árum sem hann hefur starfað.Á komandi starfsári, nú í nóvember mun kórinn takast á við Carmina Burana eftir Carl Orff og síðan á vordögum við Elijah eftir Felix Mendelssohn. Bæði verkin eru óneitanlega meðal stórbrotnustu verka kórbókmenntanna. Kórinn hefur það síðan að markmiði sínuað flytja h-moll messu J.S. Bach haustið 2009.
Á undanförnum árum hefur kórinn lagt megin áherslu á að flytja stærri verk kórbókmenntanna. Kórinn hefur nýlega flutt til að mynda Messias, e. Händel, Deutsches Requiem eftir J.Brahms og líka Requiem eftir W.A. Mozart. Nú síðastliðið vor flutti kórinn hið stórfenglega meistaraverk Requiem eftir G. Verdi í Hallgrímskirkju við ágætar undirtektir.Stjórnandi kórsins og stofnandi hansHákon Leifsson. Hann stjórnaði Háskólakórnum um árabil og er m.a. organisti í Grafarvogskirkju.Hákon hefur komið fram með fjölmörgum tónlistarhópum á Íslandi, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Íslands, Jón Leifs Camerata, Caput hópnum og fleirum. Hann kennir kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, en hluti skólastarfsins þar er nú hluti af námsvettvangi Listaháskólans.
Vegna verkefna þessa starfsárs þurfum við nú að bæta við fólkií eftirfarandi raddir:sópran, tenór og bassa.Þeir söngvarar sem áhuga hafa á því að vera með í framangreindum verkefnum er bent á að hafa samband við: